Ég var í vinnunni áðan. Bara venjulegur dagur eins og allir hinir, ég þreytt og mygluð. Það klikkar ekki í þessari vinnu að á hverjum degi lendi ég í einhverju sem gefur mér svitakast. Ég var í rólegheitunum í afgreiðslunni, bara mjög rólegt, ég bara eitthvað buin að vera að tjilla á netinu......
Svo kemur ein kona inn, tekur af sér yfirhafnirnar og á meðan koma eldri hjón inn og koma upp af afgreiðluborðinu og biðja mig um að fá nýja tíma í sjúkraþjálfun......
...á meðan verður konan sem kom inn á undan óþolinmóð, því hún kom á undan þeim og hún vill fá að kvitta fyrir mætingunni sinni í tímann (sem allri verða að gera sem fara í sjúkraþjálfun). Ég fer þá í að finna kvittunarblaðið hennar, því tíminn hennar á að vera byrjaður, þannig að hún varð eiginlega að ganga á fyrir. Hún kvittar og borgar, og meðan posinn hringir inn, fer ég að finna tíma fyrir eldri hjónin.
Fleira fólk kemur inn og fer í röðina eftir eldra fólkinu.
Eldri hjónin heimta ákveðna tíma (þau eru búin að koma þarna í mörg ár og hafa alltaf verið á þriðjudögum og fimmtudögum kl hálf 11 og þetta er greinilega orðin svakalegur vani hjá þeim að koma alltaf á þessum tíma og það er hvergi hægt að hreyfa við því)....málið er að þessi tími er ekki laus!!!!!!!!
ÞAR SEM ÉG ER Í AFLEYSINGUM, ÞÁ GLEYMDIST AÐ SEGJA MÉR FRÁ ÞESSUM FÖSTU TÍMUM OG ÉG VAR BÚIN AÐ GEFA ÖÐRU FÓLKI TÍMANN.....
Fólkið sem er fyrir aftan þau í röðinni byrja að vera óþolinmótt því það þarf að komast í tímana sína....ég næ í kvittunarblöðin þeirra meðan ég reyni að finna út úr þessu með gamla fólkið.....
(og með þessi kvittunarblöð, þá er margt sem ég þarf að gera :1)láta fólkið kvitta, 2)skrifa dagsetninguna á kvittunarblaðið, 3) merkja í bókina að aðilinn er mættur og búinn að kvitta, 4) láta fólkið borga, 5) merkja á kvittunarblaðið að það sé búið að borga, 6) merkja í bókina að fólkið er búið að borga og hvort það borgaði með a)peningum, b) debet, c) kredit, 7) láta þau kvitta á nótuna úr posanum,
merkja á nótuna hvaða sjúkraþjálfara hún tilheyrir og hvort þetta sé a)debet, b)kredit, 9) setja nótuna í kassann, 10) spurja fólkið hvort það vilji afritið.................)
Sem sé, pínu leiðinlegt, en víst nauðsynlegt, prosess.......
EN SAGAN ER HVERGI BÚIN
Meðan þetta allt er í gangi byrjar HELVÍTIS SÍMINN að hringja..........ég ignora hann, því ég hef hvorki 5 hendur né 6.skilningarvitið.........
En þá byrjar klukkan að pípa.........klukkan á fólkinu sem er í heitum bökstrum eða rafmagni........og það er mitt jobb að losa þau úr því. Þetta er GARGANDI PIRRANDI píp og ég slekk á því og ákveð að fólkið geti hinkrað í 2 mín í viðbót i bökstrunum...verð að klára þetta mess i afgreiðslunni....
Síminn minn fer að hringja.....án djóks!!!!!!!!!!! og það var akkúrat á þessari stundu sem ég átta mig á því hversu virkilega asnalegan hringitón ég er með, þegar ég er með fulla afgreiðslu af fólki sem er að bíða eftir að ég sinni þeim..........ég held að ég hafi roðnað svo mikið að ég varð fjólublá í framan....plús = fólkið var örugglega farið að taka eftir svitarákinni sem var að byrja að seytla niður ennið mitt....
Ég klára loksins að afgreiða allt fólkið sem var að fara í meðferð. Sný mér svo að gamla fólkinu og næ loksins á endanum að fá þau til að koma á öðrum tíma en þau eru vön og lofa því að þau fá svo venjulegu tímana sína aftur í næstu viku......
Síminn í afgreiðlunni hringir og ég svara....
Símtalið klárast og ég sest niður í skrifstofustólinnn og............................aaahhhhh.......þögn...............friður.................ég tek stóran andadrátt........
Skrítið hvað þetta var fljótt að fara frá FACEBOOK tjilli, yfir í stress, caos og armageddon-fíling.....og svo aftur niður í ekki neitt......Það var allt í einu algjör þögn í afgreiðslunni, mætti halda að ekkert hafi gerst...........en bíddu var ég ekki að gleyma einhverju.....................................................................
......................................................................................
...................alveg rétt............fólkið í bökstrunum....úpps....
Seinna þann dag kom svo ung kona til mín og spyr......vissir þú af kóngulónni í glugganum.....=ég ;"uuuuuuu nei!!".....=hún;" já, hún er drullustór, búin að koma sér vel fyrir þarna" ...=ég "....................(STÓR HROLLUR NIÐUR BAKIÐ OG UPP Í HÁLS AFTUR)...Jáhh er það.....ég skal tjekka á þessu"
ég fer og kíki og OJJJ....fæ hrollinn aftur.....hún er FUCKING GUL Á LITIN og með HUGE-ASS-RASS (veit að ass þýðir líka rass).....ööööööööhhh....mér líður eins og hún sé komin inná mig, þótt ég sé að horfa á hana þarna í makindum sínum í glugganum......ég fer inní þvottahús og leita af einhverju eitruðu......finn ekkert..........ég fer og næ i handryksuguna.....set hana í gang og ryksuga hana, en hun fer bara hálfa leiðina inn í ryksuguhálsinn(sem er gegnsær)....helvítis vefurinn heldur í hana........og ég þori ekki að slökkra á soginu því þá mun hún pottþétt stökkva út úr stútnum, á mig, og jáhh,,,,,ég get ekki hugsað lengra..........ég fer inná klósett, með ryksuguna í gangi.......næ í pappír og set upp að stútnum.........slekk á ryksugunni og fucking kóngulóinn grípur strax i pappírinn....en ég lyfti klósettsetunni í flýti og hendi henni og pappírnum ofaní......og horfi á hana......ojj......hún er bara eitthvað að tjilla þarna ofaní ....bara labba í vatninu og eitthvað..........svo sturta ég..............
fyrir ykkur sem vita það ekki þá er ég með HUGE-ASS köngulóarfóbíú!!!!!!!